Faxaflóahafnir

SKILMÁLARTERMS & CONDITIONS

Skilmálar fyrir notkun á hliðaraðgangskerfi Faxaflóahafna.Terms of use for the gate access system of Faxaflóahafnir.

Gildistaka: 1. apríl 2026 Effective date: 1 April 2026

1. Gildissvið og markmið1. Scope and Purpose

Skilmálar þessir gilda um aðgang að afmörkuðum lokuðum svæðum fyrir leigubifreiðar við VÖR, Skarfabakka og Miðbakka. These terms and conditions apply to access to designated, restricted taxi areas at VÖR, Skarfabakki, and Miðbakki.

Markmið skilmálanna er að tryggja öryggi, gæði, vandaða framsetningu þjónustunnar og jákvæða upplifun viðskiptavina. The purpose of these terms is to ensure safety, quality, professional presentation of services, and positive customer experience.

2. Skilyrði fyrir aðgangi og umsóknir2. Conditions for Access and Applications

Aðeins leigubifreiðar sem uppfylla eftirtalin skilyrði er heimill aðgangur að þeim svæðum sem tilgreind eru í 1. gr.: Only taxis that meet the following conditions are permitted access to the areas referred to in Article 1:

  1. Í gildi sé rekstrar- og atvinnuleyfi samkvæmt lögum nr. 120/2022 um leigubifreiðaakstur. A valid operating and business licence in accordance with Act No. 120/2022 on Taxi Services must be in force.
  2. Rekstraraðili er skráður hjá leigubifreiðastöð með gildu starfsleyfi hjá Samgöngustofu. The operator must be registered with a taxi dispatch station holding a valid operating licence issued by the Icelandic Transport Authority.

Faxaflóahafnir áskilja sér rétt til að óska eftir staðfestingu á skráningu og/eða gögnum sem sýna að skilyrði laga og reglugerða séu uppfyllt. Faxaflóahafnir reserves the right to request confirmation of such registration and/or documentation demonstrating compliance with applicable laws and regulations.

Sótt er um aðgangsheimild á heimasíðu Faxaflóahafna undir umsóknir. Rekstraraðili/atvinnuleyfishafi með aðgangsheimild telst vera notandi viðkomandi svæða. Applications for access permits shall be submitted via the Faxaflóahafnir website under applications. An operator/licence holder granted access permission shall be considered a user of the relevant areas.

3. Skyldur Faxaflóahafna3. Obligations of Faxaflóahafnir

Faxaflóahafnir veita notenda aðgang að afmörkuðum leigubílasvæðum við VÖR, Skarfabakka og Miðbakka til þess að taka á móti eða skila af sér farþegum. Faxaflóahafnir shall provide users with access to designated taxi areas at VÖR, Skarfabakki, and Miðbakki for the purpose of picking up or dropping off passengers.

4. Skyldur notanda4. Obligations of the User

Notandi ber ábyrgð á að uppfylla skyldur samkvæmt lögum 120/2022 með síðari breytingum svo og öðrum lögum og reglum er gilda um akstur leigubifreiða, þar á meðal skyldur um rafræna skráningu ferða og gagnavörslu eftir því sem við á. The user is responsible for complying with Act No. 120/2022, as amended, and all other applicable laws and regulations governing taxi operations, including electronic trip registration and data retention requirements, as applicable.

Uppfylli notandi ekki umræddar skyldur geta Faxaflóahafnir lokað fyrir aðgang hans í allt að 4 vikur. Endurtekin eða alvarleg brot geta leitt til aðgangsbanns til frambúðar. Failure to comply may result in suspension of access for up to four (4) weeks. Repeated or serious violations may lead to permanent revocation of access.

Notanda er óheimilt að neita farþegum um þjónustu nema á grundvelli málefnalegra sjónarmiða. Óheimilt er að neita farþegum um þjónustu vegna áfangastaðar. Neitun á þjónustu varðar tafarlausu aðgangsbanni. The user may not refuse service except on objective and legitimate grounds. Refusal of service based on destinations shall result in immediate suspension of access.

Notandi skal upplýsa farþega um að kvartanir vegna verðs eða þjónustu megi beina til viðkomandi leigubifreiðastöðvar og/eða Samgöngustofu. Passengers shall be informed that complaints regarding pricing or service may be directed to the relevant taxi dispatch station and/or the Icelandic Transport Authority.

Notanda er óheimilt að skilja eftir ökutæki innan svæðisins umfram þann tíma er það tekur að taka við farþegum eða láta frá sér farþega. Vehicles may not remain in the area longer than necessary for passenger pick-up or drop-off.

5. Stýring aðgangs leigubifreiða5. Access Control for Taxis

Aðgangi að svæðunum er stýrt með hliðum sem opnast við lestur númeraplötu. Access is controlled by gates using automatic licence plate recognition.

Fyrirfram bókaðar leigubifreiðar að VÖR og Skarfabakka, með aðgangsheimild, skulu fara um hlið 12 og leggja í bílastæði númer 49 og 50. Í þeim tilfellum sem bæði bílastæðin eru í notkun skal hafa samband við starfsfólk Faxaflóahafna (Ask me) sem sér um umferðastýringu. Pre-booked taxis with valid access permits travelling to VÖR and Skarfabakki shall enter via Gate 12 and park in spaces 49 and 50. If both spaces are occupied, drivers must contact Faxaflóahafnir staff ("Ask me") for traffic management assistance.

6. Brot og viðurlög6. Violations and Sanctions

Brot á reglum geta leitt til tímabundinnar eða varanlegrar útilokunar frá aðgangi að þeim svæðum er skilmálar þessir gilda um sbr. 1. gr. Violations of these rules may result in temporary or permanent exclusion from access to the areas to which these terms and conditions apply, cf. Article 1.

# Tegund brotsType of Violation BrottvísunSuspension AthugasemdirRemarks
1 Aðstoðar ekki við farangur/barnavagnFailure to assist with luggage/child stroller 2 vikurweeks
2 Óviðeigandi framkoma við farþega/starfsfólkInappropriate conduct towards passengers/staff 2 vikurweeks
3 Verðskrá ekki sýnilegFare tariff not visible 2 vikurweeks Verður að vera sýnileg til að öðlast aðgang að nýjuMust be visible to regain access
4 Ekið yfir 15 km/klst hámarkshraða innan svæðisDriving over the 15 km/h maximum speed limit within the area 2 vikurweeks
5 Brýtur umferðarlög á svæðinuViolation of traffic rules within the area 4 vikurweeks
6 Reykingar í bifreiðSmoking inside vehicle 4 vikurweeks
7 Neitar ferðRefusal of service 4 vikurweeks
8 Sækir farþega utan skilgreinds leigubifreiðasvæðisPicking up passengers outside designated taxi area 4 vikurweeks
9 Virðir ekki frelsi farþega til að velja bílFailure to respect passenger's freedom to choose a taxi 4 vikurweeks
10 Lagt í bílstæði ætlað fyrirfram bókuðum ferðum án þess vera með bókaða ferðParking in spaces reserved exclusively for pre-booked trips without holding a valid pre-booking 4 vikurweeks
11 Líkamlegt/andlegt ofbeldi gagnvart farþegum/starfsfólkiPhysical or psychological violence against passengers or staff Varanleg útilokunPermanent exclusion Tilkynnt til lögregluReport to police
12 Viljandi tjón á eignumDeliberate damage to property Varanleg útilokunPermanent exclusion Tilkynnt til lögregluReport to police
13 Fölsuð skilríki eða svindlForged identification or fraud Varanleg útilokunPermanent exclusion Tilkynnt til lögregluReport to police
14 Ekur inn á svæði án réttindaUnauthorized entry to the area Varanleg útilokunPermanent exclusion Tilkynnt til lögregluReport to police

7. Tilkynningar til lögreglu og ágreiningsmál7. Police Notifications and Dispute Resolution

Brot eða grunur um brot á lögum er ávallt tilkynnt til lögreglu. Ágreiningur um skilmála fer fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Violations or suspected violations of law shall always be reported to the police. Disputes shall be referred to the Reykjavík District Court.

8. Breytingar á skilmálum8. Amendments

Faxaflóahafnir áskilja sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Faxaflóahafnir reserves the right to amend these terms and conditions.

9. Gildistaka9. Effective Date

Skilmálar þessir taka gildi þann 1. apríl 2026. These terms and conditions enter into force on 1 April 2026.

Til bakaBack